RUSSIAN TOY
Kennel - Ræktun
Great icelandic toy
Russian Toy
Við leggjum mikið uppúr því að fylgjast með hvolpunum okkar og vera til staðar!
Great Icelandic Toy
Ræktar smáhundana af tegundinni Russian Toy. Við ræktum bæði snögghærða og síðhærða Russian Toy. Fyrsta gotið okkar af Russian Toy var árið 2017 en fyrstu hundarnir voru fluttir til landsins 2015 þó ekki af okkur. síðan þá hefur tegundin orðið eftirsóknarverð.
Með Russian Toy hvolpunum fylgir:
• Ættbók frá HRFI.
• Fyrsta skoðun, Örmerking og bólusettning.
• Heimferðarpakki með öllu sem þarf frá Ræktanda, Mona.is, Dyrafóður & Dýrabæ.
•Afsláttur hjá flottum hundabúðum.
• Gelding (ef á við)
• Lífstíðar stuðningur frá eigendum Great Icelandic Toy.
• Hundaþjálfari.
• Facebook Grúbba með öllu sem þú þarft að vita með veglegum upplisýngum og fróðleik.
Frekari upplisýngar um biðlistann og hvernig á að sækja um hvolp af tegundinni má finna inn á Facebook síðu okkar.
Verðið á Russian Toy hvolp er 460.000kr innifalinn er VSK. Hægt er að skipta greiðslum í gegnum Pei eða Valitor ef þess er óskað.
Russian Toy
Henta öllum fjölskyldum!
Russian toy er mjög hlutlaus tegund og hentar þar að leiðandi fyrir stóran hóp af fólki. Sem og ungu fólki upp í aldraða. Þeir henta með flest öllum tegundum af hundum svo sem smáum og stórum og koma sér bara vel út með flest öllum dýrategundum.
Góðir með yngri kynslóðinni s.s börnum allt frá ungabörnum í unglinga. Þeir hafa sýnt vel fram á að þeir geti hjálpað andlega veikum einstaklingum t.d. með kvíða, þunglyndi og jafnframt einhverfu.
Russian Toy eru háfættir, sterkbyggðir smáhundar með gáfur fyrir allskyns hlutum eins og að læra nýja hluti og er þér kleift að kenna Russian Toy nánast allt.
Líftími: 12-14 ár
Stærð: 20-28cm
Þyngd: 1,5-3kg
Heilsa
Russian Toy er almennt heilbrigt hunda kyn, eins og margarsmáhundategundir eru tennurnar fyrst og fremst heilsuvandi Flestir hvolpar missa ekki allar hvolpatennur og þurfa að fjarlægja þær. Tannholdssjúkdómur, uppsöfnun tannsteins, getur byrjað um eins árs aldur. Regluleg tannumhirða eins og tannburstun getur dregið úr tannstein og komið í veg fyrir tannhreinsun eða fjarlægingu tanna. Ábyrgir ræktendur skima stofninn sinn með tilliti til heilsufarsástanda eins augnskoðun & hnéskoðun.
Umhirða
Síðhærða afbrigðið krefst meiri snyrtingar en snögghærða afbrigði af augljósum ástæðum. Langi feldurinn er með líkamshár frá 1-3 cm á lengd. Eyru þeirra eru þakin þykku, löngum hárum sem mynda hnúta. Langhærðu ætti að bursta tvisvar til þrisvar í viku. Mánaðarleg böð með hágæða sjampói og hárnæringu duga yfirleitt til að halda feldinum heilbrigðum. Snöggu er með stuttanfeld, glansandi hár án undirfelds. Mælt er með reglulegum vikulegum burstun með mjúkum bursta ásamt einstaka böðum til að halda sléttum feldinum lausum við dautt hár.
Hreifing
Russian Toy er talinn hafa miðlungs mikla orku. Þeir þurfa reglulega hreyfingu, en vegna smæðar þeirra er venjulegur garður eða langhlaup venjulega nóg. Þeir elska að fara í göngutúra með mönnum sínum og elska að hlaupa og leika sér þar til þeir hrynja í fangið á þér í langan kúr. Þar sem litlir hundar eru með viðkvæmari háls og barka en stórir hundar, er mælt með því að taumur sé festur við beisli í stað háls þegar þeir ganga um. Russian Toy aðlaðast samt rosalega að orkustigi eiganda og fylgir honum í alskins hreyfingar eða slökun.
Þjálfun
Almennt séð eru Russian Toy þægilegir og fúsir til að læra, sem gerir þau mjög þjálfanleg. Hins vegar eru þeir enn terrierar í hjarta sínu enda upprunalega Russian Toy Terrier & ræktaðir fyrir Rottuveiðar. Geta verið þrjóskir og munu reyna að vera yfirmenn hússins. Trúða, ljúfir & vingjarnlegur persónuleiki gera þá að frábærum hundum fyrir hundafimi & Nosework eða annarskonar verkefni. Þeir eru fljótir að læra & tilbúnir að gera allt fyrir eiganda sinn.
Russian Toy